Enn af sundkortum borgarstjóra.
7.11.2007 | 22:37
Þegar ég sendi kennurum í Reykjavík bréfkornið mitt átti ég von á viðbrögðum en ekki þessu. Takk fyrir. Vonandi segir þetta okkur eitthvað um þann baráttuhug sem býr í okkur nú þegar við siglum inn í kjarabaráttu. Flestir eru sammála mér um efni bréfsins frá Degi og margir sendu honum persónuleg bréf um álit sitt á þessum lausnum meirihlutans. En einhverjir eru að misskilja. Það er ekki þannig að ég hafi neitt á móti því að fá frítt í sund þótt það kosti mig ekki 7000 á mánuði eins og hjá honum Gísla fyrir norðan, ég hef heldur ekkert á móti því að skreppa á Þjóminjasafnið svona einu sinni á ári. Það er hitt hvernig þetta er sett fram. Við erum með of fátt starfslið í skólunum í dag og flestir eru með meiri kennslu en þeir ætluðu sér. Við erum með fleiri leiðbeinendur en áður, við erum með fleiri uppsagnir á borðum skólastjórnenda og þeir sjá ekki fram á að geta greitt úr þessari flækju sem komin er. Álagið hefur ekki verið meira þau 18 ár sem ég hef verið við kennslu. Ástæðan er of lág laun. Þá kemur þetta góða fríðindatilboð frá borgarstjórn sem á að vera eins og segir í bréfi þeirra til þess að laða að fleira hæft fólk í kennslu. Það eru markmiðin og tímasetningin sem ég er ósátt við. Fríðindi eru alltaf góð en aðeins ef þau eru veitt í góðum tilgangi.
En baráttuhugur er í fólki það finn ég þannig að enn er von.
Lifið heil
Rósa vongóða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bréf frá borgarstjóra :-(
2.11.2007 | 16:10
Þegar nýr meirihluti tók við, með ungu og efnilegu fólki þá ákvað ég að vera bjartsýn. Nú hefur ský dregið fyrir sólu og góð ráð dýr. Í vikunni sem er að líða fékk ég bréf frá hæstvirtum borgarstjóra félagshyggjumanninum, Fylkismanninum, árbæingnum, lækninum, unga pabbanum Degi B.. Ekki persónulegt heldur sent til allra starfsmanna í grunnskólum borgarinnar og eflaust viða. Þar segir orðrétt:
- Við fáum 16.000 heilsuræktarstyrk höfðum 10.000 kr. síðan eigum við eftir að greiða skatt af þessu. Árskort í sundlaugina, verst að geta ekki notað það kort í Bónus! Bókasafnskort, árskort í Húsdýra og fjölskyldugarðinn og safnakort. Ég veit ekki hvort öll þessi kort séu fyrir mig sem einstakling eða hvort þetta séu fjölskyldukort en ef þetta eru kort með aðgangi fyrir einn kallar notkun þeirra á meiri útgjöld fyrir mig sem fjölskyldumanneskju. Ef ég skrepp á Þjóðminjasafnið nenni ég ekki ein heldur tek kallinn og börnin með og þarf því eflaust að borga fyrir þau, nema ég fari á miðvikudegi´, en þá kemur kortið frá Degi ekki að neinum notum. Þannig að þetta er eins og gylliboðin sem Neytendasamtökin hafa verið að vara við. Fríðindi sem kalla á aukin útgjöld. Ætlum við að þiggja þetta þegjandi og hljóðalaust.
- Tvö hundruð milljónum verður ráðstafað í sérstakan "pott" sem stjórnendur þeirra stofnana sem glíma við manneklu geta notað til þess að umbuna starfsfólki sínu vegna margs konar álags eða til að bæta starfsanda á annan hátt. Skólastjórinn minn hefur eflaust fengið reglunar þannig að strax eftir vetrarfrí þá ætla ég að athuga hvernig þetta virkar. Kannski erum við öll á leiðinni í helgarferð á Egilstaði. Nema skilgreining á manneklu sé öðruvísi en mín.
- Starfsfólk leikskóla, grunnskóla (1.-4.bekk) og hjúkrunarstofnana sem skylt er að snæða hádegismat með þjónustuþegum sínum - og kýs að taka ekki styttri vinnutíma á móti - mun, frá og með 1.október, fá greitt fyrir þær stundir í yfirvinnutímum. Hugsið ykkur að þetta þurfi að setja inn sem bitlinga. Er þetta ekki bundið í kjarasamning ég bara spyr?
- Starfsfólk sem býr að reynslu úr sambærilegum störfum úr öðrum sveitarfélögum eða ríki mun frá og með 1.nóvember fá þá reynslu metna inn í kjör sín hjá Reykjavíkurborg. Fyrir mig persónulega að ef ég skipti um skólastig fæ ég enn hærri laun á leikskóla heldur en í grunnskóla þar sem mín 18 ár í kennslu verða að fullu metin en ekki 10 eins og er í dag. Vei.
- Foreldri mun fá forgang fyrir börn sín á frístundaheimili og/eða leikskóla á meðan það starfar á þessum stofnunum. Þetta er jákvætt fyrir fólk með ung börn en gagnast ekki nema hluta af kennurum í grunnskólum þeir eru í meirihluta yfir 40 ára með eldir börn.
Auk þessa er kveðið á um ýmsar frekari aðgerðir sem er m.a. ætlað að laða að starfsfólk úr hinum ýmsu þjóðfélagshópum, eins og úr röðum námsmanna og eldra fólks, og að gera starfsfólki sem ekki býðst full vinna, eða takmörkuð yfirvinna, kleift að auka við sig í starfi innan borgarinnar, ef það svo kýs.
Ekki getur þetta komið að góðum notum þegar vantar kennara, eldra fólk og námsmenn eru jú ágætir en með ekkert kennarapróf þá dugar það skammt. Eða er það ekki stefna nýs meirihluta að reyna að laða til sín menntað fólk í kennslu heldur að ráða "gott" fólk úr hinum ýmsu þjófélagshópum. Ekki líst mér á. Allur vindur farinn úr blöðrunni og eftir sitjum við og glímum við mannekluna með okkar sniði. Nokkrir búnir að segja upp, nokkrir á leið í fæðingarorlof, einn kominn á aldur, enginn sækir um og við hin sitjum eftir, nögum neglurnar, reynum að brosa framan í börn og foreldra og gerum uppkast af uppsagnarbréfi.
Lifið heil og skellum okkur í sund ..................ein
Rósa
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (28)
Boltar í stað stóla
29.10.2007 | 21:26
Í nokkrum skólum í Ameríku hafa verið gerðar tilraunir með að skipta út hefðbundnum stólum í skólastofum og setja í staðinn bolta eins og notaðir eru í líkamsrækt. Þetta hefur gefist vel, nemendur eiga betur með að einbeita sér og um leið styrkjast þeir líkamlega.
Mér líst vel á þetta, ætla að skella mér í skólaheimsókn þarna út og reyna svo að innleiða þetta í íslenska skóla. Kemur einhver með? Svo erum við að kvarta yfir "rúllustólum". Lesið meira um þetta á : http://www.startribune.com/west/story/1511730.html
Lifið heil
Rósa
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Nú brosir lífið við mér, ég kemst bæði í sund og á bókasafnið!
21.10.2007 | 17:58
Þeir kennarar sem hafa sagt upp störfum sínum koma til með að draga uppsagnir sínar til baka og þeir sem voru um það bil að segja upp hætta við það. Jú nýr meirihluti hefur komið með svo gott útspil að það skiptir öllu máli. Ég kem til með að fá frítt á bókasafnið það kostar mig 1200 á ári. Ég fæ frítt í sund en ég fer frekar sjaldan þannig að það reiknast sem svona 3000 kr. og síðan fæ ég 16000 kr í líkamsræktarstyrk en hafði 10000 þannig að við bætist 6000 kall en eftir er að draga af þessu skatt. Ég verð bústin og sæl og get örugglega farið með fólkið mitt í sumarfrí á hverju ári eftir þessa kjarabót eða hvað haldið þið.
Lifið heil
Rósa ríka
Bloggar | Breytt 25.10.2007 kl. 22:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
70 leiðbeinendur í grunnskólum Reykjavíkur
17.10.2007 | 19:37
Já mér hefur verið tíðrætt um ástandið í grunnskólum landsins nú í haust. Og enn held ég áfram. Þið munið að skólastarf er með eðlilegum hætti að sögn ráðamanna. En ég hef heimildir fyrir því að í grunnskólum borgarinnar séu nú starfandi 70 leiðbeinendur við kennslu en í fyrra voru þeir aðeins 30 það er því þó nokkur fjölgun. Og allt telst þetta eðlilegt eða hvað. Við vitum líka að leiðbeinandi og leiðbeinandi er ekki það sama, en allir eiga það þó sameiginlegt að vera ekki með réttindi til kennslu. Ekki viljum við leggjast inn á spítala þar sem svo stórt hlutfall af læknum eru ekki með réttindi er það? Hvar eru foreldrar, hafa þeir ekkert við þetta að athuga eða hvað? Við vitum jú öll af hverju ástandi er svona, lág laun kennara og aukið álag sem er að að fara með starfsfólk í skólum. Eitthvað verður að gera en við getum því miður ekki beðið mikið lengur. Það stefnir í uppsagnir ef ekkert verður gert það held ég að sé deginum ljósara.
Lifið heil
Rósa raunamædda
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Til hamingju Áslaug
16.10.2007 | 22:22
Gaman er að fá jákvæðar fréttir af skólastarfi og það fengum við svo sannarlega í dag. Áslaug Trausta heimilisfræðikennari í Rimaskóla hlaut fjöregg MNÍ fyrir að auka áhuga ungs fólks á matargerð. Eftir að hafa fylgst með henni get ég ekki annað en verið sammála þeim. Það sem mér finnst ekki síður eftirtektavert er hversu margir drengir hafa fengið áhuga á þessu fagi og það finnst mér frábært. Ekki er annað hægt að segja að þetta sé rós í hnappagatið hjá þeim í Rimaskóla sem bætist við þær sem eru þar fyrir.
kv
Rósa Harðar
Áslaug Traustadóttir hlaut Fjöreggið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Velkomin til starfa Oddný
15.10.2007 | 19:31
Ég vil bjóða Oddnýju Sturludóttur velkomna til starfa í Menntaráð Reykjavíkur. Ég hef fulla trú á henni í þessa stöðu og sé fram á bjartari tíma fram undan. Hún er ekki bara úr Árbænum heldur en hún vel upp alin, málefnaleg og skynsöm og geri ráð fyrir að hún eigi auðvelt með að skilja kjör kennara.
Lifið heil
Rósa bjartsýna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Að lifa af
11.10.2007 | 23:42
Það er ekki oft sem fólk kemur með athugasemdir við það sem ég skrifa en ég fagna því. Meira verður að heyrast um málefni kennara og skólans. Þorgerður Diðriksdóttir svaraði því sem ég skrifaði í gær og þakka ég henni fyrir. Ég vona að hún hafi ekki misskilið mig og held reyndar ekki. Hún er í betri stöðu en ég að breyta launum kennara eða hafa áhrif á gang mála sem formaður Kennarafélags Reykjavíkur. Og hún er enn að kenna þannig að hún veit hversu erfitt það er að lifa af þeim launum sem við fáum og að sætta sig við þau. En þó að ég hafi sagt það hér í seinustu færslu að mér þætti gaman í vinnunni þá er það að sjálfsögðu ekki nóg. Ég ét andskotakornið ekki þessa ánægju. Þess vegna er ég eins og margir í minni stöðu að hugsa minn gang. Þetta gengur auðvitað ekki svona mikið lengur. Þið sem hafið fylgst með skrifum mínum og þekkið til í skólum þetta skólaárið hljótið að hafa tekið eftir því hversu slæmt ástandi er, verra hefur það varla verið síðan ég byrjaði að kenna. Því er maður alvarlega farin að hugsa um hvað sé hægt að gera í stöðunni. Ég get sem einstaklingur ákveðið að segja upp og fengið mér aðra vinnu, en ég get líka tekið þátt í aðgerðum ásamt öðrum kennurum til að knýja fram launabætur án þess þó að fara í verkfall. Ég auglýsi hér eftir samstöðu.
Lifið heil
Rósa hungraða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Yfirkeyrsla
10.10.2007 | 20:41
Jæja þá eru tæpir 2 mánuðir búnar af þessu skólaári og fátt um fréttir af þeim vígstöðum. Skólahald er jú með eðlilegum hætti að sögn þeirra sem fjalla um og ráða þeim málum. Ég hef ekkert skrifað því þegar heim er komið er allt bensín búið, hugurinn tómur og fátt annað kemst að hjá mér en heitt bað, róleg tónlist og notalegt rúm. Þannig held ég að sé um marga kennara um þessar mundir. Þetta eðlilega ástand er þreytandi til lengdar og varla getur það talist eðlilegt. Allir sem vettlingi gátu valdi tóku að sér fleiri tíma og fleiri nemendur og eitthvað verður undan að láta. Það sem lætur undan er heilsa, bæði líkamleg og andleg hjá kennurum og bætast þá forföll ofan á aukatímana sem við samþykktum í upphafi skólaárs. Nemendur fara ekki varhluta af ástandinu og eru agamál fleiri þegar svona árar. Þá bætist við auka fundir með foreldrum þeirra barna sem eiga erfiða daga ásamt því að sækja kennarafundi, deildarfundi, teymisfundi, námsskrárfundi og öll þau námskeið sem við verðum eða óskum eftir að taka.
En þrátt fyrir þetta finnst mér gaman í vinnunni, ég held það sé vegna þess að ég veit aldrei hvað dagurinn ber í skauti sér og ég er innan um svo skemmtilegt fólk allan daginn.
Lifið heil
Rósa þreytta
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
MÓTVÆGISAÐGERÐIR
3.10.2007 | 18:48
Hvað er þetta með fjölmiðlamenn í dag. Þeir eru eins og litlir krakka sem fá nýtt leikfang eða eitthvað í þá áttina. Þeir eru búnir að læra nýtt orð mótvægisaðgerðir. Þeir nota það alla vega í tíma og ótíma. Það eru mótvægisaðgerðir á alla kanta og þetta er að verða hallærislegt. Þeir eru studdir rækilega af ráðamönnum þjóðarinnar sem komu þessu æði af stað. Nú er bara að bíða og sjá hverjar verða mótvægisaðgerðir launagreiðaenda kennara vegna álagst sem nú er viðloðandi í skólum landsins vegna manneklu sem rekja má til lágra launa.
lifið heil
Rósa
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)