....og aldrei það kemur til baka

Já ágætu vinur um leið og ég óska ykkur árs og friðar horfi ég á brennuna út um gluggann hjá mér, degi of seint en vonandi erum við að brenna gamla árið en ekki það nýja.  Við höfum átt róleg og skemmtileg jól og áramót og  nokkuð laus við tölvur þar sem allar tölvur á heimilinu hrundu rétt fyrir jól en það kom ekki að sök við borðuðum meira, lásum meira og horfðum meira á sjónvarpið. Stórfjölskyldan gat verið saman um ármótin þar sem veiku börnin voru orðin frísk og vonandi gefur það okkur fyrirheit um það sem sem árið ber í skauti sér.  Ég ætla auðvitað að reyna að verða betri manneskja á nýju ári, verða besta útgáfan að mér sjálfri til þessa. 

Lifið heil

Rósa


Á villugötum með lestrarkennslu

Eru íslenskir skólar á villugötum í sambandi við lestrarkennslu?  Í nýlegri PISA könnun kemur fram að íslenskir nemendur standa sig ekki nógu vel í lesskilningi.  Þetta kemur mér ekki mikið á óvart þar sem ég hef lengi haft áhyggjur af lestri nemenda eftir að hinu eiginlega "lestrarnámi" lýkur.  En hvenær lýkur því.  Það er svo  önnur spurning.  Lýkur því þegar nemendur hafa náð tækninni að tengja saman hljóð  og bókastafa og geta lesið orð og síðan setningar.  Eða lýkur því kannski aldrei.  Mjög algengt er að þegar nemandi hefur náð leshraða upp á 8 eða er kominn í 5. bekk þá er ekkert á dagskrá sem kallast getur lestrarnám þó gefinn sé tími til lestrar.  Rósa Eggertsdóttir sérfræðingur á skólaþróunarsviði á Akureyri var í viðtali í fréttatíma sjónvarpsins í gær og hún segir Íslendinga ekki vera í takt við fræðaheiminn.  Hún segir að aðferðir sem notaðar eru séu ekki nógu góðar.  Nauðsynlegt er að staldra við og breyta viðhorfi og kennsluháttum.  En ég hvet ykkur til að hlusta á þetta viðtal:http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4338519/7

Lifið heil

Rósa á rauðklædda


Laun kennara

Ég fór á jólahlaðborð í gær bara nokkuð gaman, þarna voru um 170 vinnufélagar og makar. Ég þekkti fáa en reyndi að vera kurteis og spjalla.  Eitthvað virkaði ég kennaraleg í fasi þó ég hafi reynt að forðast það, ég legg mig fram við að tala um eitthvað annað en kennslu og laun kennara á mannamótum en stundum tekst það bara ekki.  Nema þarna var kona sem ég fór spjalla við og reyndist hún vera kennari.  Hún sagði svolítið merkilegt.  Hún  er um fimmtugt, leikskólakennari í byrjun og ákvað svo fyrir 10 árum að skella sér í Kennó og bæta við  sig námi til þess að öðlast réttindi sem grunnskólakennari.  Hún kláraði prófið og hóf kennslu í grunnskóla hér í borginni fyrir um 6 eða 7 árum.  Þetta var munur fyrir hana þar sem hún hækkaði í launum.  Ánægð með sig undi hún hag sínum vel en svo tók að fjara undan.  Ef hún ákveður í dag að fara aftur inn á leikskólann þá hækkar hún í launum um ein 20 - 30 þúsund  mánuði.  Þetta hefur gerst á  aðeins6 til 7 árum.  Er þetta eðlilegt eða hvað.  Ég fagna því að leikskólakennarar hafa náð fram meiri kjarabótum en harma það um leið að grunnskólakennara sitji eftir.  Eitthvað þarf að gera en það er bara spurning hvort vilji og geta sé til staðar.

Lifið heil

Rósa


5,6% kaupmáttarrýrnun kennara

Frá því um ársbyrjun 2005 hefur almennur kaupmáttur launafólks aukist  um 8% en verðlag hækkað um 14%. Á sama tíma hafa laun kennara hækkað um 7,5% sem þýðir kaupmáttur launa hefur rýrnað um 5,6%.  Og á sama tíma hefur launavísitala hækkað um 22%.  Þetta segir allt sem segja þarf og veit ég að launanefnd KÍ hefur þetta í huga þegar kröfur kennara verðar settar fram fyrir komandi kjaraviðræður.  Enn og aftur stöndum við í sömu sporum og hef ég það á tilfinningunni að fyrir hver 2 skref sem við förum áfram þá förum við 3 aftur á bak.

Lifið heil

Rósa


Menntamálaráðherra og laun kennara

Síðasta verkfall grunnskólakennara eru mörgum enn í fersku minni.  Það var of langt, leiðinlegt og skilaði litlu.  Ég man eftir viðtali sem tekið var við háttvirtan menntamálaráðherra Þorgerði Katrínu, en þá var langt liðið á verkfallið og hún spurð hvort hún þyrfti ekki að kippa í spotta og stoppa þetta.  Hún svaraði því til að launamál kennara og ástandið sem skapaðist í þessu verkfalli kæmi henni bara ekkert við.  Nú leggur hún til fjögur frumvörp til alþingis um skólamál og er eitt þeirra um menntun kennara.  Í því kemur fram að kennara eigi að hafa 5 ára háskólanám að baka.  Grunnskólakennaranám er nú 3 ár þannig að hér bætast við 2 ár. Þetta á að gerast á nokkrum árum þannig að hægt sé að aðlaga þetta að þeim sem annast menntun kennara og eflaust opna fleiri möguleika fyrir hina sem eru með gamalt próf.  En til þess að laða fólk í 5 ára háskólanám sem lýkur með kennsluréttindum í grunnskóla þarf að koma til veruleg launahækkun kennara.  Þegar Þorgerður var spurð út í þetta á dögunum, taldi hún að það hlyti bara að gerast.  Mér finnst einhver skítalykt af þessu öllu saman.  Alveg get ég verið sammála um að breyta þurfi kennaramenntuninni en það þarf nú þegar að hækka laun kennara miðað við þá menntun og reynslu sem kennara hafa í dag en ef krafist verður 5 ára náms þá þurfum við eitthvað annað en verulegar launahækkanir. Ég er ekki viss um að auðvelt verði að ráða kennara til starfa með 5 ára háskólapróf ef við getum boðið honum 220.000 á mánuði eða hvað haldið þið.

Lifið heil

Rósa


Námsferðir

Pantaðu aðventuferð í Alviðru nú fyrir jólin, komdu á jólasýningu í Árbæjarsafn, fáðu leikhóp í skólann....... Svona hljóða tilboð sem berast okkur kennurum þessa dagana eins og reyndar alla aðra.  Þetta er allt frekar skemmtileg ef ekki þyrfti að greiða fyrir þetta.  Nú má ekki lengur rukka nemendur/foreldra  þar sem þetta telst vera hluti af námi og nám er skylda sem ekki á að greiða fyrir.  Þessar skemmtilegu ferðir eða viðburðir geta kosta nem. frá 500 til 3000 krónum, skólar geta  ekki boðið upp á þessa tilbreytingu í námi nema í litlu mæli.  Það kæmi mér ekki á óvart að skólabúðir úti á landi verði lagðar niður þar nema tilkomi fjáröflun.  Það er samt eðlilegt að rukka fyrir mat þann sem nemendur borða í skólanum.  Skóladagurinn er venjulega frá 8:10 til 14:30 og verða nemendur að koma með nesti að heiman eða að kaupa mat á staðnum.  Þar sem nemendur eru skyldugir til að vera í skólanum þennan tíma væri þá ekki ráð að bjóða upp á mat þannig að öruggt væri að allir væru með mettan maga og tilbúnir í verkefni dagsins. Það mætti vera hafragrautur við komuna í skólann, ávaxtatími um 10 og svo hollur og góður hádegismatur.  Nógu háir eru skattarnir.

Lifið heil

Rósa


Kennaranemar

Hjá okkar hafa verið kennaranemar undanfarið. Annars vegar 2 ungar konur sem eru á síðustu metrum námsins og hins vegar þriggja manna teymi sem hefur fengið skólann úthlutað sem sinn skóla og munu sækja til okkar visku og reynslu á næstunni.  Fyrra teymið var hjá okkur í nokkrar vikur og gaman var að spjalla við þær um nám og starf.  En þær sögðu okkur frá því að í þeirra útskriftarhópi vissu þær ekki um neinn sem væri staðráðinn í því að fara í kennslu um leið og námi lyki.  Margir ætluðu í frekara nám en aðrir ætluðu að fá sér góða vinnu.  Svo er spurning hvort þetta sé ákvörðun sem nemarnir tóku áður en þeir hófu nám  eða á meðan á náminu stóð.  Éru of fáir af nýútskrifuðum kennurum sem skila sér í kennslu? Eru það aðeins launin sem fælir fólk frá þessari vinnu? Er það fjölmennur hópur sem endist stutt í kennslu? Þegar stórt er spurt er fátt um svör.

 Hitt teymið var aðeins hjá okkur í viku og eru þau á fyrsta ári.  Þeim kom á óvart að enginn af okkur reyndi að vara þau við  því að leggja kennslu fyrir sig því skólafélagar þeirra sem voru nemar í öðrum grunnskólum höfðu flestir þá reynslu.

Lifið heil

Rósa


Oddný í heimsókn

Þegar Oddný Sturludóttir varð formaður Menntaráðs Reykjavíkur sendi ég henni heillaóskir og bauð hana velkomna í heimsókn.  Í dag á degi íslenskrar tungu þáði hún boðið og heimsótti okkur í Korpuskóla.  Hún gekk um skólann og hlýddi á fagran söng og ljóðaflutning í tilefni af deginum.  Við sýndum henni skólann og lýstum fyrir henni kostum hans og göllum.  Við fræddum hana um ástandið eins og við gátum og sýndi hún áhuga og skilning.  Þetta heimsókn og gagnleg og vonandi skilar hún einhverjum árangri. Takk fyrir komuna Oddný.


Að róast

Jæja þá er maður komin í fréttirnar en það var aldrei markmiðið. Aðeins að opna umræður á milli kennara í Reykjavík þar sem lítið hefur farið fyrir þeim.  Misjafn er hversu mikil umræða er á kennarastofum borgarinnar og hve samgangur er mikill. En það tókst og það er ég ánægð með. Í nýju fréttabréfi Félags grunnskólakennara kemur fram að ekkert verður látið uppi um áherslur í komandi viðræðum fyrr en um miðjan janúar og reyni ég að vera þolinmóð þangað til.  Ég ætla að reyna að koma með skemmtilegar fréttir um skólamál þangað til.

Lifið heil

Rósa að róast


Skertur skóladagur

Í haust þegar skólinn var að byrja þá vantaði kennara á minn vinnustað og vantar enn. Skólastjórinn fór fram á það við fræðslustjóra að vera með skerta stundartöflu fyrir einhvern nemendahópinn og tók hann illa í það, sagði að hér væri skólaskylda og að skólastjóri yrði að finna lausn á þessum vanda.  Kenna sjálfur ef ekkert annað væri hægt.  Við sem kennum þarna fyrir bættum mörg við okkur tímum og þessu var reddað til bráðabirgða.  Nú er hins vega fyrsti skólastjórinn í Reykjavík búinn að tilkynna foreldrum ákveðins hóps að skerða þurfi viðveru þeirra í skólanum vegna manneklu.  Það hlaut að koma að því.  Mér finnst nú ekki gott að skerða skóladag barna en held að betra sé að gera það heldur en að vera með of marga aðila til að sjá um kennsluna, ör skipti yfir daginn fyrir unga nemendur er ekki  farsælt.  Enda tökum við þátt í að fela vandann ef við bætum endalaust við okkur vinnu. Og ekki held ég að gæði kennslunnar séu mikil þegar kennarar eru með yfir 40 tíma á töflu.  En vonandi verður þetta til að opna augu foreldra og annarra um ástandið sem ríkir á þessum vinnustöðum og hvað það er sem börnunum okkar er boðið upp á.

Lifið heil

Rósa á leið í helgarfrí


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband