70 leiðbeinendur í grunnskólum Reykjavíkur

Já mér hefur verið tíðrætt um ástandið í grunnskólum landsins nú í haust.  Og enn held ég áfram.  Þið munið að skólastarf er með eðlilegum hætti að sögn ráðamanna.  En ég hef heimildir fyrir því að í grunnskólum borgarinnar séu nú starfandi 70 leiðbeinendur við kennslu en í fyrra voru þeir aðeins 30 það er því þó nokkur fjölgun.  Og allt telst þetta eðlilegt eða hvað.  Við vitum líka að leiðbeinandi og leiðbeinandi er ekki það sama, en allir eiga það þó sameiginlegt að vera ekki með réttindi til kennslu.  Ekki viljum við leggjast inn á spítala þar sem svo stórt hlutfall af læknum eru ekki með réttindi er það? Hvar eru foreldrar, hafa þeir ekkert við þetta að athuga eða hvað? Við vitum jú öll af hverju ástandi er svona, lág laun kennara og aukið álag sem er að að fara með starfsfólk í skólum.  Eitthvað verður að gera en við getum því miður ekki beðið mikið lengur. Það stefnir í uppsagnir ef ekkert verður gert það held ég að sé deginum ljósara.

Lifið heil

Rósa raunamædda


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorgerður Laufey Diðriksdóttir

89% aukning leiðbeinenda í grunnskólum borgarinnar.

Núna fyrst heyrist frá skólastjórnendum að ekki sé hægt að halda úti lögboðinni kennslu vegna manneklu.

Þú vitnar til lækninga, væri hægt að halda úti sömu læknisþjónustu ef ekki fengjust læknar til starfa?

Hvað ef það væri sett í lög að allir sem teldust "veikir " ættu rétt á að leggjast inn á sjúkrahús, sjúkrahúsin ætti samkvæmt lögum að framkvæma fyrirfram ákveðnar margar aðgerðir á ári og þær væru jafnframt skilgreindar í nokkra flokka bæklunaraðgerðir, hjartaaðgerðir o.s.fr. Allt þetta væri sagt til um í lögum og skylda sjúkrahúsanna væri að uppfylla skilyrði laga eins og gefur að skilja. Hvað gerðum við þá. Væri bifvélavirkinn þá ekki ráðinn á undanþágu til að gera við kransæðastíflu?

Við búum við svolítið sérstakar aðstæður, okkur ber að taka alla nemendur á aldrinum 6-16 ára í skólanna og veita þeim lögboðna kennslu eins og fram kemur í lögum um grunnskóla. Jafnframt eru lög um hvað eigi að kenna og hversu margar stundir hver kennslugrein á að hafa af þeim tíma.

Því til viðbótar banna löginn að þeir sem ekki eru með tilskilinn réttindi megi ekki kenna.

Að sjálfsögðu er neyðarástand þegar þegar ekki fást menntaðir kennara til að sinna kennslu.

Þetta er það sem við höfum verið að segja síðan fyrir síðustu áramót. Síðustu tveir kjarasamningar grunnskólakennara hafa verið samþykktir með svo naumum meirihluta að margir samsama sig ekki samningum.

Samningurinn 2001 var samþykktur með rétt rúmlega 56% meirihluta og samningurinn 2004 var nauðasamningur. Sem  ber á að þeir sem samþykktu tvoru einungis að velja á milli tilboði LN og gerðardóms. 52% félagsmanna litu á tilboð LN skárri en gerðardóm.

Launanefndin fékk síðan tækifæri til að leiðrétta kjör kennara vegna efnahags- og kjaraþróunar vegna greinar 16.1, en notuðu ekki tækifærið eins og flestum er kunnugt. Sáttasemjari koma að þeim málum með eftirminnilegum hætti eftir að sveitafélöginn sáu fram á að samningarnefnd Launanefndar sveitafélaga ætlaði ekki að gera neitt til að leiðrétta kjör kennara. Sáttasemjari lagði fyrir samningsaðila KÍ og LN tillögu sem gengið var að eftir að allar aðrar leiðir voru kannaðar og sýnt þótti að LN hugðist ekki gera neitt.

Þá var ljóst að LN gat með auðveldum hætti afstýrt þeirri stöðu sem nú er uppi, þeir hins vegar kusu að túlka þær athugasemdir og aðvaranir sem fram komu frá forustusveit kennara sem hótanir og innantóm orð.

FG og LN sömdu raunverulega ekki um niðurstöðu 16.1 heldur samþykktu tillögu frá sáttasemjara. Launaleiðréttingar sem lagðar voru til af sáttasemjara voru 3,75% gegn framlengingu samnings. Þær koma til framkvæmda nú 1. jan 2008 0,75% ofan á áður umsaminn 2,25% og 1. mars 3%

Allt þetta þarf að hafa í huga þegar manneklumál innan grunnskólans eru rædd.

Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, 21.10.2007 kl. 16:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband