Bloggfærslur mánaðarins, október 2007

Boltar í stað stóla

Í nokkrum skólum í Ameríku hafa verið gerðar tilraunir með að skipta út hefðbundnum stólum í skólastofum og setja í staðinn bolta eins og notaðir eru í líkamsrækt.  Þetta hefur gefist vel, nemendur eiga betur með að einbeita sér og um leið styrkjast þeir líkamlega.

616-6ball1028_doublewide_prod_affiliate_2Mér líst vel á þetta, ætla að skella mér í skólaheimsókn þarna út og reyna svo að innleiða þetta í íslenska skóla.  Kemur einhver með? Svo erum við að kvarta yfir "rúllustólum". Lesið meira um þetta á :    http://www.startribune.com/west/story/1511730.html

Lifið heil

Rósa


Nú brosir lífið við mér, ég kemst bæði í sund og á bókasafnið!

Þeir kennarar sem hafa sagt upp störfum sínum koma til með að draga uppsagnir sínar til baka og þeir sem voru um það bil að segja upp hætta við  það.  Jú nýr meirihluti hefur komið með svo gott útspil að það skiptir öllu máli.  Ég kem til með að fá frítt á bókasafnið það kostar mig 1200 á ári.  Ég fæ frítt í sund en ég fer frekar sjaldan þannig að það reiknast sem svona 3000 kr.  og síðan fæ ég 16000 kr í líkamsræktarstyrk en hafði 10000 þannig að við bætist 6000 kall en eftir er að draga af þessu skatt.  Ég verð bústin og sæl og get örugglega farið með fólkið mitt í sumarfrí á hverju ári eftir þessa kjarabót eða hvað haldið þið.

Lifið heil

Rósa ríka


70 leiðbeinendur í grunnskólum Reykjavíkur

Já mér hefur verið tíðrætt um ástandið í grunnskólum landsins nú í haust.  Og enn held ég áfram.  Þið munið að skólastarf er með eðlilegum hætti að sögn ráðamanna.  En ég hef heimildir fyrir því að í grunnskólum borgarinnar séu nú starfandi 70 leiðbeinendur við kennslu en í fyrra voru þeir aðeins 30 það er því þó nokkur fjölgun.  Og allt telst þetta eðlilegt eða hvað.  Við vitum líka að leiðbeinandi og leiðbeinandi er ekki það sama, en allir eiga það þó sameiginlegt að vera ekki með réttindi til kennslu.  Ekki viljum við leggjast inn á spítala þar sem svo stórt hlutfall af læknum eru ekki með réttindi er það? Hvar eru foreldrar, hafa þeir ekkert við þetta að athuga eða hvað? Við vitum jú öll af hverju ástandi er svona, lág laun kennara og aukið álag sem er að að fara með starfsfólk í skólum.  Eitthvað verður að gera en við getum því miður ekki beðið mikið lengur. Það stefnir í uppsagnir ef ekkert verður gert það held ég að sé deginum ljósara.

Lifið heil

Rósa raunamædda


Til hamingju Áslaug

Gaman er að fá jákvæðar fréttir af skólastarfi og það fengum við svo sannarlega í dag.  Áslaug Trausta heimilisfræðikennari í Rimaskóla hlaut fjöregg MNÍ fyrir að auka áhuga ungs fólks á matargerð.  Eftir að hafa fylgst með henni get ég ekki annað en verið sammála þeim.  Það sem mér finnst ekki síður eftirtektavert er hversu margir drengir hafa fengið áhuga á þessu fagi og það finnst mér frábært.  Ekki er annað hægt að segja að þetta sé rós í hnappagatið hjá þeim í Rimaskóla sem bætist við þær sem eru þar fyrir.

kv

Rósa Harðar


mbl.is Áslaug Traustadóttir hlaut Fjöreggið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Velkomin til starfa Oddný

Ég vil bjóða Oddnýju Sturludóttur velkomna til starfa í Menntaráð Reykjavíkur.  Ég hef fulla trú á henni í þessa stöðu og sé fram á bjartari tíma fram undan.  Hún er ekki bara úr Árbænum heldur en hún vel upp alin, málefnaleg og skynsöm og geri ráð fyrir að hún eigi auðvelt með að skilja kjör kennara.

Lifið heil

Rósa bjartsýna


Að lifa af

Það er ekki oft sem fólk kemur með athugasemdir við það sem ég skrifa en ég fagna því.  Meira verður að heyrast um málefni kennara og skólans.  Þorgerður Diðriksdóttir svaraði því sem ég skrifaði í gær og þakka ég henni fyrir.  Ég vona að hún hafi ekki misskilið mig og held reyndar ekki.  Hún er í betri stöðu en ég að breyta launum kennara eða hafa áhrif á gang mála sem formaður Kennarafélags Reykjavíkur.  Og hún er enn að kenna þannig að hún veit hversu erfitt það er að lifa af þeim launum sem við fáum og að sætta sig við þau.  En þó að ég hafi sagt það hér í seinustu færslu að mér þætti gaman í vinnunni þá er það að sjálfsögðu ekki nóg.  Ég ét andskotakornið ekki þessa ánægju.  Þess vegna er ég eins og margir í minni stöðu að hugsa minn gang.  Þetta gengur auðvitað ekki svona mikið lengur.  Þið sem hafið fylgst með skrifum mínum og þekkið til í skólum þetta skólaárið hljótið að hafa tekið eftir því hversu slæmt ástandi er, verra hefur það varla verið síðan ég byrjaði að kenna.  Því er maður alvarlega farin að hugsa um  hvað sé hægt að gera í stöðunni.  Ég get sem einstaklingur ákveðið að segja upp og fengið mér aðra vinnu, en ég get líka tekið þátt í aðgerðum ásamt öðrum kennurum til að knýja fram launabætur án þess þó að fara í verkfall.  Ég auglýsi hér eftir samstöðu.

Lifið heil

Rósa hungraða


Yfirkeyrsla

Jæja þá eru tæpir 2 mánuðir búnar af þessu skólaári og fátt um fréttir af þeim vígstöðum.  Skólahald er jú með eðlilegum hætti að sögn þeirra sem fjalla um og ráða þeim málum.  Ég hef ekkert skrifað því þegar heim er komið er allt bensín búið, hugurinn tómur og fátt annað kemst að hjá mér en heitt bað, róleg tónlist og notalegt rúm.  Þannig held ég að sé um marga kennara um þessar mundir.  Þetta eðlilega ástand er þreytandi til lengdar og varla getur það talist eðlilegt.  Allir sem vettlingi gátu valdi tóku að sér fleiri tíma og fleiri nemendur og eitthvað verður undan að láta.  Það sem lætur undan er heilsa, bæði líkamleg og andleg hjá kennurum og bætast þá forföll ofan á aukatímana sem við samþykktum í upphafi skólaárs.  Nemendur fara ekki varhluta af ástandinu og eru agamál fleiri þegar svona árar. Þá bætist við auka fundir með foreldrum þeirra barna sem eiga erfiða daga ásamt því að sækja kennarafundi, deildarfundi, teymisfundi, námsskrárfundi og öll þau námskeið sem við verðum eða óskum eftir að taka. 

En þrátt fyrir þetta finnst mér gaman í vinnunni, ég held það sé vegna þess að ég veit aldrei hvað dagurinn ber í skauti sér og ég er innan um svo skemmtilegt fólk allan daginn.

Lifið heil

Rósa þreytta


MÓTVÆGISAÐGERÐIR

Hvað er þetta með fjölmiðlamenn í dag.  Þeir eru eins og litlir krakka sem fá nýtt leikfang eða eitthvað í þá áttina.  Þeir eru búnir að læra nýtt orð mótvægisaðgerðir.  Þeir nota það alla vega í tíma og ótíma.  Það eru mótvægisaðgerðir á alla kanta og þetta er að verða hallærislegt. Þeir eru studdir rækilega af ráðamönnum þjóðarinnar sem komu þessu æði af stað.  Nú er bara að bíða og sjá hverjar verða mótvægisaðgerðir launagreiðaenda kennara vegna álagst sem nú er viðloðandi í skólum landsins vegna manneklu sem rekja má til lágra launa.

lifið heil

Rósa


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband