Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2008

Nóg af venjulegum mönnum til...

....sagði Sigmar Maríusson, gullsmiður og stórvinur Stórvals þegar hann var spurður hvort Stórval hefði ekki komið fólki fyrir sjónir sem hálfgerður furðufugl.  jú sem betur fer því nóg er af venjulegum mönnum og gott að einn og einn sé svona. Sigmar talaði fallega og af virðingu um þennan merkilega mann og vekur okkur til umhugsunar um hve dýrmætt er að bera virðingu fyrir öðrum eins og þeir eru.  Ekki að reyna breyta fólki og steypa öllum í sama form.  Þetta þurfum við sem vinnum með börnum að hafa í huga á hverjum degi.

Hér getið þið hlustað á viðtalið. 

Lifið heil

Rósa á róandi 


Gott en ekki nóg

Það er þörf á því að sporna við offitu barna og unglinga með breyttu matarræði en það er ekki nóg.  Við þurfum að hvetja börn og unglinga til að hreyfa sig meira og gera hreyfingu aðgengilegri.  Í þeim hraða sem ríkir í þjóðfélaginu þá er oft erfitt að koma hreyfingu barna fyrir. Of mörg börn eyða of miklum tíma fyrir fram tölvur og sjónvarpið.  Flest börn fá 2 leikfimitíma á viku yfir vetrartímann og ekkert meira, það er ekki nóg. Nú þegar skóladagurinn er orðin þetta langur þá er það einkennilegt að vægi íþrótta sé ekki meira en þegar ég var að byrja í skóla, 80 mín í leikfimi á viku og 30 mín í sund hálfan veturinn.  Margir foreldra "nenna" ekki að koma ungum börnum sínum íþróttir eftir skóla enda ekki nema von ef "vinnutími" barna er frá 8 til 5.  Yngri nemendur ættu að hafa kost á því að stunda íþróttir á þessu tímabili.  En við verðum líka að halda þeim í íþróttum og þar þurfa íþróttafélögin að vinna markvissara starf, reyna að halda í fleiri en þá sem gætu skilað hagnaði. Síðan er það unga fólkið. Ef við náum árangri með börnin þá skilar þetta sér þegar fram líða stundir.  Nú í sumar hef ég farið nokkrum sinnum í sund og ég á bara ekki til orð.  Í sundlaugunum er of mikið af ungum stúlkum frá svona 16 til 26 sem eru spikfeitar.  Ég sjálf er nú ekkert of grönn en þetta er of mikið af því góða og miklu fleiri en fyrir svona 10 árum.

Lifið heil

Rósa í leikfimi 

 


mbl.is Reynt að sporna við offitu barna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sóley Sóley

Jæja þá er ég búin að fara í hina árlegu sumarferð í Sveitabúðina Sóley. Sveitabúðin Sóley er við bæinn Tungu í Gaulverjabæjarhreppi. Í gamla bílskúrnum við íbúðarhúsið er  búið að koma upp lítilli búð, að danskri fyrirmynd.  Þangað fara vinkonur mínar nokkrum sinnum á ári til að verlsa eitthvað fallegt, nóg er af því.  Í gær vorum við 6 sem lögðum í langferð í langferðarbíl.  Komum við á Selfossi í voða fallegri búð sem heitir Snúður og Snælda.  Upp í bíl aftur og austur til Sóleyjar.  Sóley tók á móti okkur á hlaðinu, hafði átt von á okkur.  Þegar við vorum búnar  með stutta yfirferð kom Björgvin maðurinn hennar með léttar veitingar, það er ekki að spyrja að því.  Við versluðum eitthvað smálegt og fengum auðvitað afbragðs þjónustu. Á heimleið er vaninn að stoppa og seðja sárasta hungrið og stefna tekin á Þrastarlund, þar var nú ekkert spennandi í boði fyrir dömur eins og okkur, aðeins kótelettur og sveittir hamborgarar og nú voru góð ráð dýr.  Af því að við vorum ekkert svo svangar tókum við smá útúrdúr og fórum að Álftavatni. Þar hafði ein okkar dvalið lengi sem barn og vildi endilega sýna okkur litla húsið hennar ömmu Díu.  Þarna langt inn í kjarri fundum við þetta litla gamla hús sem lítið sem ekkert hafði verið breytt síðan fyrir stríð ef ég man rétt.  Víð kíktum á gluggana og það mátti heyra upphrópanir eins oh, vá og æði.  Rétt hjá var lítil sandvík og þurfti Lilla aðeins að bleyta tærnar eins og hún gerði þegar hún var minni.  Nú vorum við svangar og leitin hélt áfram.  Ég ætla ekkert að segja ykkur hvar við enduðum því ég mæli ekkert sérstaklega með þeim stað.  En ég mæli með ferð í Sveitabúðin Sóley ef þið hafið gaman að fallegum hlutum og skemmtilegu framtaki.

Lifið heil

Rósa í sumarfríiPicture 002

 

Lilla að vaða


Dagurinn runninn upp.....

......sem búið er að bíða eftir í heilt ár.  Unglingurinn er farinn.  Það var reyndar hann sem er búinn að bíða í heilt ár ekki ég.  Í dag fór hann til Spánar með félögum sínum í fótboltanum að taka þátt í Costa Blanca cup.    Búið er að safna í heilt ár og láta sig dreyma mikið lengur.  Loksins komið að þessu.  Mikið held ég að þetta verði skemmtileg ferð en erfitt verður að spila fótbolta í þessum hita og hann sem er með innbyggt termo án kælingar í kroppnum á sér.


Minnihluti í meirihluta

Eins og þið vitið sem lesið hafa bloggið mitt þá hef ég áhuga á menntamálum og les gjarnan fundargerðir Menntaráðs Reykjavíkur.  Nú bíð ég spennt efir því hvað var rætt á fundinum í dag.  En  þá voru fulltrúar minnihlutans í menntaráði Reykjavíkur  í meirihluta á fundi ráðsins.Margrét Sverrisdóttir varaborgarfulltrúi og nefndarmaður í menntaráði vildi kenna slæmum starfsanda í meirihlutanum um þessa slöku mætingu.  Ekki er ég viss um það sé rétt  þótt freistandi sé að trúa því.  En ef svo er þá finnst mér þetta vera óvirðing við málaflokkinn og kjósendur.  Hitt er kannski réttara að nefndarmenn hafi einfaldlega verið í fríum, júlí er enn aðal sumarleyfismánuðurinn. En Það eru jú varanefndarmenn og vonandi hefur ekki gleymst að hringja í þá. En svo er spurning hvort ekki hafi mátt gefa sumarfrí í þessu eins og öðru.  Hvað var rætt veit ég ekki en fundargerðin kemur vonandi næstu daga. Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður menntaráðs, og Marta Guðjónsdóttir mættu á fundinn fyrir meirihlutann.Oddný Sturludóttir, Helga Björg Ragnarsdóttir og Margrét Sverrisdóttir sátu fundinn fyrir minnihlutann.

Lifið heil

Rósa í minni.......


Nýtt líf

Þegar unglingurinn var farinn í vinnu í morgun þá ákvað ég að skríða aftur upp í, hef ekki gert þetta lengi.  Um 9:02 vaknaði ég við  hljóð úr símanum á náttborðinu. Sms frá Önnu vinkonu minni sem sagði mér að komið væri að fæðingu.  Ég hentist á fætur, í sturtu, tannburstaði mig og var komin til hennar um kl. 9:20.  Þá voru 2 hvolpar fæddir.  Sá fyrsti hafði fæðst um 4:30 og því miður dáinn. Það var merkilegt hvernig tíkin tók því. Hún tók hana í kjaftinn og fór með hana út, þar sem hún gróf hana í holu sem hún hafði grafið daginn áður.  Næsti hvolpur kom um 8:30 og átti hún hann úti á grasi.  Þegar ég kom var Snotra orðin þreytt og virtist eiga erfitt með þetta allt.  Um 12:10 kom svo þriðji hvolpurinn og fæddi hún hann líka úti á grasi, ég ætla að eiga hann, finnst ég eiga eitthvað í honum. Um 13:40 kom sá fjórði án þess að við yrðum þess varar.  Eftir það biðum við nokkuð lengi og áttum von á einum í viðbót en ekki var hann komin þegar ég yfirgaf yfirsetuna um kl. 17:20.  Þetta var gaman og ný upplifun fyrir mig, ég hef ekkert séð fæðast síðan ég var í skólaferðalagi í 5.bekk, en þá sá ég kálf fæðast á Hvammi.  Mínar fæðingar eru ekki taldar með ég horfði ekki á þær.  Þetta er alltaf jafn mikið undur.

Lifið heilPicture 040

Rósa yfirsetukona 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband