Boltar í stað stóla
29.10.2007 | 21:26
Í nokkrum skólum í Ameríku hafa verið gerðar tilraunir með að skipta út hefðbundnum stólum í skólastofum og setja í staðinn bolta eins og notaðir eru í líkamsrækt. Þetta hefur gefist vel, nemendur eiga betur með að einbeita sér og um leið styrkjast þeir líkamlega.
Mér líst vel á þetta, ætla að skella mér í skólaheimsókn þarna út og reyna svo að innleiða þetta í íslenska skóla. Kemur einhver með? Svo erum við að kvarta yfir "rúllustólum". Lesið meira um þetta á : http://www.startribune.com/west/story/1511730.html
Lifið heil
Rósa
Athugasemdir
Heil og sæl
já, mér líst satt að segja vel á þessa bolta því ég sé þá nýtast meira en bara til að sitja á....sem sagt, fjölnota kennslugagn í skólastofu....hvað viljum við annað til að koma til móts við þarfir hvers og eins....þess virði að prófa....frábær hugmynd !!..kem með þér til Ameríku....when ever we can....
kv. Áslaug
Áslaug Ó. Harðardóttir (IP-tala skráð) 31.10.2007 kl. 22:52
Ég fór í skólaheimsókn fyirr ári til Ameríku þar var svona í einni skólastofu í skóla sem ég skoðaði og gekk vel meðan ég horfði á. Mér þótti þetta áhugavert og spurðist fyrir þá var mér sagt að þetta hefði verið innleitt í skólann 2-3 árum fyrr sett í allar stofur, en allir hefðu gefist upp á þessu og beðið um stóla aftur, nema þessi eini kennari sem var með góða nemendur og gekk ágætlega. Sögðu að það væri mikið hoss á þessu og hefði farið í tóma vitleysu. Jæja spennandi að heyra þegar þú er búin að skoða.
Iðunn (IP-tala skráð) 6.11.2007 kl. 18:41
Mjög athyglivert
Ingibjörg Friðriksdóttir, 8.11.2007 kl. 19:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.