Nýtt líf
1.7.2008 | 18:11
Þegar unglingurinn var farinn í vinnu í morgun þá ákvað ég að skríða aftur upp í, hef ekki gert þetta lengi. Um 9:02 vaknaði ég við hljóð úr símanum á náttborðinu. Sms frá Önnu vinkonu minni sem sagði mér að komið væri að fæðingu. Ég hentist á fætur, í sturtu, tannburstaði mig og var komin til hennar um kl. 9:20. Þá voru 2 hvolpar fæddir. Sá fyrsti hafði fæðst um 4:30 og því miður dáinn. Það var merkilegt hvernig tíkin tók því. Hún tók hana í kjaftinn og fór með hana út, þar sem hún gróf hana í holu sem hún hafði grafið daginn áður. Næsti hvolpur kom um 8:30 og átti hún hann úti á grasi. Þegar ég kom var Snotra orðin þreytt og virtist eiga erfitt með þetta allt. Um 12:10 kom svo þriðji hvolpurinn og fæddi hún hann líka úti á grasi, ég ætla að eiga hann, finnst ég eiga eitthvað í honum. Um 13:40 kom sá fjórði án þess að við yrðum þess varar. Eftir það biðum við nokkuð lengi og áttum von á einum í viðbót en ekki var hann komin þegar ég yfirgaf yfirsetuna um kl. 17:20. Þetta var gaman og ný upplifun fyrir mig, ég hef ekkert séð fæðast síðan ég var í skólaferðalagi í 5.bekk, en þá sá ég kálf fæðast á Hvammi. Mínar fæðingar eru ekki taldar með ég horfði ekki á þær. Þetta er alltaf jafn mikið undur.
Rósa yfirsetukona
Athugasemdir
En spennandi - ertu s.s. búin að fá hvolp? Hvernig tegund er svo hvolpurinn þinn?
Edda Agnarsdóttir, 2.7.2008 kl. 01:03
Það er vandamálið. Helmingurinn af fjölskyldunni er til í hvolp, hinir eru að hugsa, en ég er ekki viss um að neinn ætli sér að þrífa eftir hann. Og þetta með tegundina. Mamman er hreinræktuð Beagle tík ættbókarfærð og allt það en hún strauk og náði sér í óléttu hjá einhverjum sem við erum ekki alveg með á hreinu. Líklega íslenskur. Þannig að hvolparnir eru hreinræktaðir blendingar
Rósa Harðardóttir, 2.7.2008 kl. 08:41
Til hamingju með að vera orðin "hundamamma"
Veistu, að um leið og hvolpakrúttið verður komið inn á heimilið þá á hann eftir að stela úr ykkur öllum og það finnst alltaf einhver til að hugsa um hann (verður jafnvel ifist um það). Góð gæludýr eru gulli betri. Ég á reyndar bara kött - en ég ætlaði sko alls ekki að hleypa neinu gæludýri inn á heimilið þegar dóttir mín kom með hann fyrir rúmum 4 árum inn á heimilið. En lét undan - og hef ekki séð eftir því síðan. Við erum miklir mátar við Skuggi og það elska hann allir á heimilinu ofurheitt.
Anna Þóra Jónsdóttir, 2.7.2008 kl. 11:50
Dúllur.
Jenný Anna Baldursdóttir, 2.7.2008 kl. 16:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.