Morgunstund gefur......

...............aukna orku.  Já ég hendist á fætur 5:30 þrisvar í viku og fer í göngu.  Í morgun var veðrið yndislegt og það var ekkert erfitt að vakna.  Hvað er yndislegra en að ganga í fallegu umhverfi eins og er hér í dalnum okkar, hlusta á fuglasönginn og anda að sér fersku sumarlofti áður en allir aðrir fara af stað. Við erum orðnar 3 í gönguklúbbnum og veðrið er alltaf gott og mæting 100%.  Við uppskerum lengri dag og meiri orku.

Lifið heil

Rósa  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Frábært! Í hvaða dal ert þú?

Edda Agnarsdóttir, 18.6.2008 kl. 11:16

2 Smámynd: Rósa Harðardóttir

Elliðaárdal, vin í borginni.

Rósa Harðardóttir, 18.6.2008 kl. 11:21

3 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

 Það er fallegur dalur!

Edda Agnarsdóttir, 18.6.2008 kl. 11:26

4 Smámynd: Steinunn Þórisdóttir

 Rósa, ég er stödd á Amager og geng noður að strönd, það er líka gott. en ekkert jafnast á við Elliðaárdalinn okkar. Hann er bestur. Kveðja frá Köben.

Steinunn Þórisdóttir, 18.6.2008 kl. 21:06

5 Smámynd: Steinunn Þórisdóttir

Þetta átti að vera niður að strönd

Steinunn Þórisdóttir, 18.6.2008 kl. 21:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband