Morgunstund gefur......
18.6.2008 | 11:05
...............aukna orku. Já ég hendist á fætur 5:30 þrisvar í viku og fer í göngu. Í morgun var veðrið yndislegt og það var ekkert erfitt að vakna. Hvað er yndislegra en að ganga í fallegu umhverfi eins og er hér í dalnum okkar, hlusta á fuglasönginn og anda að sér fersku sumarlofti áður en allir aðrir fara af stað. Við erum orðnar 3 í gönguklúbbnum og veðrið er alltaf gott og mæting 100%. Við uppskerum lengri dag og meiri orku.
Lifið heil
Rósa
Athugasemdir
Frábært! Í hvaða dal ert þú?
Edda Agnarsdóttir, 18.6.2008 kl. 11:16
Elliðaárdal, vin í borginni.
Rósa Harðardóttir, 18.6.2008 kl. 11:21
Það er fallegur dalur!
Edda Agnarsdóttir, 18.6.2008 kl. 11:26
Rósa, ég er stödd á Amager og geng noður að strönd, það er líka gott. en ekkert jafnast á við Elliðaárdalinn okkar. Hann er bestur. Kveðja frá Köben.
Steinunn Þórisdóttir, 18.6.2008 kl. 21:06
Þetta átti að vera niður að strönd
Steinunn Þórisdóttir, 18.6.2008 kl. 21:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.