Heima er best
15.6.2008 | 17:57
Ég fæ aldrei leið á því að elda góðan mat og á sumrin er grillið óspart notað. Við erum nú samt að breytast í fugla hér á þessum bæ því oftar en ekki verður kjúklingur fyrir valinu þegar staðir er við kjötborðið. Hann er hollur og endalausir möguleikar í eldun. En oft er erfitt að finna nýjar leiðir. Um helgina grilluðum við kjúkling eina ferðina enn og heppnaðist bara nokkuð vel. Hér kemur uppskrift og mynd.
4 kjúklingabringur
kryddlögur:
4 hvítlauksrif söxuð
4 skalottlaukar fínsaxaðir (má nota hálfan venjulegan)
1 tsk kóríanderfræ
1 tsk kummin, malað
1 stöngull sítrónugras
2 rauð chilialdin fínsöxuð
4 msk ólífuolía
Setið allt saman í matvinnsluvél og maukið vel. Setjið kjúklingabringurnar í maukið og látið marínerast í 2-4 tíma.
Berið fram með kús kús, sataysósu eða kaldri sósu og þessu ágæta salati:
1 poki gott salat t.d klettasalat
1-2 paprikur rauðar, gular eða orange
1 gúrka
1 box kokteiltómatar
1 lítil dós niðursoðnar ferskjur
1 poki litlar mozzarella kúlur
furuhnetur og ristaðar kókosflögur eftir smekk. Öllu blanda saman og gott er að setja smá balsamiksírop yfir salatið rétt fyrir framleiðslu.
Þessu var svo skolað niður með frönsku eðalvíni Lamothe Vincent Merlot Cabernet.
skál!
Flokkur: Matur og drykkur | Facebook
Athugasemdir
Mmm, þetta hljómar vel. Ég ætla að prófa þetta næst þegar ég elda kjúklingabringur.
Laufey Eyþórsdóttir, 16.6.2008 kl. 20:43
Þetta lítur vel út - ég hleyp einhverntímann í tölvuna og kíki á þetta þegar ég þarf á að halda. Ég er mikið kjúklingakjötsfan!
Edda Agnarsdóttir, 17.6.2008 kl. 11:48
Já til hamingju með daginn!
Edda Agnarsdóttir, 17.6.2008 kl. 11:48
Mmmmmm þetta hljómar vel Rósa, en hefur þú prófað bjórkjúkling? Hann er algjört lostæti.
Steinunn Þórisdóttir, 17.6.2008 kl. 18:22
Þetta var gott. En endilega kíkið á bloggið hjá Ragnari Frey, það er skemmtilegt.
www.ragnarfreyr.blog.is
Rósa Harðardóttir, 18.6.2008 kl. 11:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.