Benjamín Nökkvi

Frændi minn Benjamín Nökkvi á afmæli í dag 28. júlí og er fjögurra ára.  Það er merkileg ævi sem þessi litli strákur hefur lifað og marga hildina hefur hann háð.  Þegar hann var 9 vikna greindist hann með hvítblæði og hefur ævi hans einkennst af spítalavist, aðgerðum, sprautum og öðru tilfallandi.  En í dag lítur allt vel út og unir hann sér vel í faðmi yndislegra fjölskyldu þar sem sjaldan er lognmolla.  Svo innilega til hamingju með daginn elsku Benjamín.

Hér er hægt að skoða allt um þennan duglega dreng:

http://benjonikla.blog.is/blog/benjonikla/

Picture 030


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Dýrfjörð

Til hamingju með flottan strák.

Kristín Dýrfjörð, 29.7.2007 kl. 02:40

2 identicon

Takk fyrir falleg orð í garð okkar og Benjamíns okkar.  Virkilega hlýlegt og mér vöknaði hreinlega um augu (sem er ekki svo oft!) við að lesa þessi orð um litla súpermanninn.  TAKK RÓSA!

Eygló

ps. skammast mín alveg fyrir að hafa ekki hringt þegar Guðrún Selma átti afmæli - var sko ekki búin að gleyma því, kom mér ekki í það.  Hringi á eftir

Eygló (mamma hans Benjamíns Nökkva) (IP-tala skráð) 3.8.2007 kl. 15:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband